Guđmundur á ferđ á Brekkudal fyrir nokkrum árum međ sonarsyni sína og nafna, Ragnarsson og Sigurđarson. Gćđingarnir bryđja mélin og vindurinn blćs um fax.
Harmonikukarlarnir og Lóa spila á Tjörn á Ţingeyri í attrćđisafmćli Sigurjóns G. Jónassonar frá Lokinhömrum 30. nóv. 2005. Guđmundur er hljómsveitarstjóri ţeirrar ţekktu hljómsveitar og stjórnar henni af léttleika.
Gengiđ í salinn. Gunnar Bjarnason og Sigurđur Fr. Jónsson međ dragspil sín tilbúnir til leiks.
Kvennareiđ hestamanna á Fellasókn á árum áđur. Nú heyrir slíkt liđinni tíđ af ýmsum ástćđum.
Guđmundur er stoltur af fćrleikum sínum eins og hestamanna er háttur.
Hér bera menn saman bćkur sínar, Ásvaldur harmonikuleikari á Núpi og hljómsveitarstjórinn.
Hreppsnefnd Ţingeyrarhrepps ţegar allt lék í lyndi. Frá vinstri: Jónas Ólafssson, sveitarstjóri, Guđmundur Grétar Guđmundsson, Guđmundur Ingvarsson, oddviti, Bjarni G. Einarsson og Guđmundur Valgeirsson.
Ragnar Guđmundsson, Raggi á Stöđinni, er hćgri hönd föđur síns í hestamennskunni. Svanberg Gunnlaugsson í baksýn.
Tveir af frammámönnum Fellasóknar, séra Tómas Jónsson og Gunnlaugur Sigurjónsson, Fellabiskup. Ţeir stjórnuđu öllu í sókninni međ harđri hendi, ásamt leikmanni nr. 1 en ţađ var auđvitađ afmćlisbarniđ Guđmundur Ingvarsson.
Hópreiđar hestamanna voru nokkuđ algengar á tímabili í Fellasókn.
Gott ef ţessi var ekki í tilefni af einhverjum kosningum.
Leikmađur númer 1 í essinu sínu.
Hér er séra Tómas Jónsson í Fellasókn greinilega ađ segja eina af sínum ógleymanlegu sögum. Til vinstri er eiginkona hans, Sigríđur Guđrún Steinţórsdóttir og til hćgri Sigríđur Ţórarinsdóttir, eiginkona Sigţórs Gunnarssonar, hestaformanns ţáverandi.
Í dag fyllir áttunda tuginn Guðmundur Ingvarsson, fyrrum póst- og símstöðvarstjóri á Þingeyri. Þetta finnst mörgum sjálfsagt nokkuð undarlegt, en verður þó ekki mótmælt. Guðmundur er einn af þeim mönnum sem kom þvert yfir Ísland til að setjast að á Vestfjörðum. Fann hér sína góðu konu og lífshamingju og hefur ekki héðan farið síðan. Hann var alinn upp á Syðra-Lóni á Langanesströndum og á þar ættfesti sína.
Guðmundur kom til Þingeyrar árið 1954 og starfaði fyrst sem verslunarstjóri hjá Kaupfélagi Dýrfirðinga. Síðan gerðist hann starfsmaður hjá Pósti og síma og vann þar upp frá því alla sína starfsævi.
Guðmundur Ingvarsson hefur komið víða við í Dýrafirði í gegnum tíðina. Nestor dýrfirskra hestamanna og harmonikuspilara, forystumaður í sveitarstjórnarmálum og kaupfélagsmálum hefur hann verið og hvarvetna látið gott af sér leiða. Guðmundur er maður glaðlyndur og hrókur alls fagnaðar þegar svo ber við. Hann hefur ánægju af að segja græskulausar gamansögur, bæði af sjálfum sér og öðrum. Ákaflega traustur maður og velviljaður sem býður af sér góðan þokka. Guðmundur er kvæntur Ólöfu Ólafsdóttur, sem er innfæddur Þingeyringur og eiga þau 4 börn.
Ljósmyndirnar tók Hallgrímur Sveinsson.
Hallgrímur Sveinsson.