A A A
  • 1949 - Guðberg Kristján Gunnarsson
  • 1962 - Unnur Cornette Bjarnadóttir
21.04.2015 - 06:41 | Vestfirska forlagið,Hallgrímur Sveinsson

Gamla myndin

Ágúst Einarson og Vigdís Finnbogadóttir.
Ágúst Einarson og Vigdís Finnbogadóttir.

Gamla myndin er af Vigdísi Finnbogadóttur með Ágúst Einarsson frá Dynjanda í Jökulfjörðum upp á arminn. Birtum við hana í tilefni afmælis hennar um daginn. Ljósm. ókunnur.

   Úr viðtali Jökuls Jakobssonar á RÚV. og Vestfirska fréttablaðinu á Sjómannadaginn 1984.

„Þeir tylltu sér í einu horni stofunnar og þegar skimað var um hana, blöstu við myndir af Vigdísi forseta og sama máli virtist gegna um aðrar vistarverur hússins, alls staðar voru myndir af Vigdísi. Á sjónvarpinu var mynd sem sýndi Gústa leiða forsetann upp bryggjuna. Strákur spurði fyrst hvort hann væri þá Vigdísarmaður?

    -Já ég studdi hana til forsetakjörs. Ansans ósköp almennileg kona og blátt áfram bara.

   - Þið hittust í fyrra hvernig bar það að?

   -Það var þannig að ég hafði verið að segja manni að sunnan dálitla ævisögu af trillunni minni. Þar með af hverju listinn og kapparnir á henni væru málaðir bláir. Þannig var að hún amma mín fylgdi mér alltaf á Jóhönnu og bjargaði mér einu sinni. Þessi amma mín gekk alltaf með bláan klút á höfðinu. Þetta hafði ég sagt þessum manni, sem var  rithöfundur, og hann hafði sagt Vigdísi að þessi Ágúst Einarsson ætti trillu sem honum þætti vænt um. Svo segir hún að sig langi að sjá hana Jóhönnu með bláa klútinn.

Þegar hún svo kom hér í fyrra var hún búin að segja bæjarstjóranum að sig langaði að taka hendina á honum Ágústi Einarssyni og skipshöfninni af Guðbjarti, ef þeir væru við. Hann hringir bara í mig og spyr hvernig ég þekki hana. Ég sagði að ég bara vissi hver hún væri, ég hefði staðið með henni og væri henni dyggur þjónn. Svo þegar hún kemur hingað, þá er svolítið hlé hjá henni áður en hún á að mæta á Austurvelli. Þá segir hún við bæjarstjórann hvort það væri ekki möguleiki að fá að hitta hann Ágúst niður við trilluna. Hann hringir hérna í mig og spyr hvort ég sé tilkominn. Já ég segist nú vera að klæða mig. Það var ekkert með það, hann sendi lögreglubíl eftir mér.

Daginn eftir mætir hún á Hlíf. Mér dettur þá í hug að fara inneftir og mæta henni þar. Svo þegar hún er að fara og gengur fram og ég er inni í miðri þvögunni, þá kemur hún bara inn í hana miðja og segist bara verða að fá að kyssa mig. Ég sé velkominn að Bessastöðum hvenær sem ég komi suður. Ósköp almennileg að tala við hana.

   (Úr bókinni Bær við árnið kenndur eftir Jón Þór Benediktsson)

 

Hallgrímur Sveinsson - Vestfirska forlagið

« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31