A A A
  • 1981 - Berglind Hrönn Hlynsdóttir
« 1 af 2 »

Leikdeild Höfrungs á Þingeyri frumsýnir kl. 14 í dag, laugardaginn 14. mars 2015 ævintýrið um galdrakarlinn í Oz. „Galdrakarlinn í Oz er sérlega viðamikil sýning en þetta er í fyrsta sinn sem þessi leikgerð af verkinu er sýnd innandyra. Já, innandyra, því áður hefur aðeins leikhópurinn Lotta sýnt verkið um land allt og að vanda eru sýningar þess frábæra leikhóps utandyra. Höfundur leikgerðar er Ármann Guðmundsson ein aðalsprautan í Ljótu hálfvitunum. Tónlistin er eftir Ljótu hálfvitana auk þess sem hinn vestfirski Guðmundur Hjaltason hefur samið nokkur lög sérstaklega fyrir þessa uppfærslu,“ segir í kynningu. 

Aðalhlutverkið, Dórótheu litlu stúlkunnar frá Kansas, leikur Gréta Proppé Hjaltadóttir nemandi við Grunnskólann á Þingeyri. Alls taka 16 leikarar þátt í sýningunni og annar eins hópur starfar að tjaldabaki. Það má búast við sannkallaðri töfra stund á Þingeyri næstu misserinn enda hefur sjálfur Galdrakarlinn í Oz tekið sér þar búsetu að minnsta kosti um stundarsakir. 

 

Leikstjóri er Elfar Logi Hannesson, tengdasonur Dýrafjarðar.


Sýningar:

Frumsýning lau. 14. mars kl.14.00
2 sýning sun. 15. mars kl.14.00
3. sýning lau. 21. mars kl.14.00
4. sýning sun. 22. mars kl.14.00

Sýningar um páska:
5. sýning fös. 3. apríl kl.17.00
6. sýning fös. 3. april kl.20.00
7. sýning lau. 4. apríl kl.14.00

Miðasölusími: 864 2974

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30