A A A
  • 1922 - Gunnlaugur Sigurjónsson
  • 1974 - Þorleifur Kristján Sigurvinsson
  • 1980 - Var Jhon Lennon myrtur í New York
28.07.2015 - 07:31 | Ásthildur Sturludóttir,Fréttablaðið

Frestun Dýrafjarðarganga? Nei, takk!

Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri í Vesturbyggð.
Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri í Vesturbyggð.

Barátta okkar Vestfirðinga fyrir bættum samgöngum er orðin áratugalöng. Ávallt virðast lausnir í sjónmáli en því miður hafa vestfirskar samgöngubætur liðið fyrir síendurtekna "frestun á framkvæmdum" um langt skeið. Ýmist hefur þurft að kæla hagkerfið eða draga saman vegna peningaleysis og þá er framkvæmdum á Vestfjörðum iðulega frestað. Vestfirðingar eru skynsamt fólk, seinþreytt til vandræða og hafa í gegnum tíðina sýnt þessum ákvörðunum skilning og tekið þeim af yfirvegun.

 

Dýrafjarðargöng, Dynjandisheiði, vegur um Gufudalssveit og vegur norður í Árneshrepp eru allt framkvæmdir sem áttu að vera tilbúnar fyrir nær 10 árum. Því miður hafa þessar samgöngubætur enn ekki orðið að veruleika. Þessir vegir eru forsenda samvinnu og samstarfs á Vestfjörðum og eflingar byggðanna. Þeir eru forsenda samreksturs heilbrigðisstofnana og samnýtingar starfsfólks. Þær eru forsenda reksturs á sameiginlegum embættum sýslumanns, lögreglustjóra, skattstjóra, starfi minjavarðar, Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða og Fjórðungssambands Vestfirðinga. Án vegabóta verður aldrei hægt að ná þeim slagkrafti sem nauðsynlegur er starfsemi þessari. Nú eða til að ná fram þeim sparnaði og fagmennsku sem sameining heilbrigðisstofnana og sýslumannsembætta áttu að skila svæðinu. Án Dýrafjarðarganga verður sameining stofnana á svæðinu ekkert annað en sameiginleg kennitala.

 

Nýlega kom formaður samgöngunefndar og þingmaður Norðvesturkjördæmis fram og sagði að göng undir Fjarðarheiði ættu að færast fremst í röð jarðgangaframkvæmda og hægt yrði að bjóða þau út á næsta ári, enda væri pólitískur vilji fyrir framkvæmdinni. Ég hef mikinn skilning á því að bæta þurfi samgöngur til Seyðisfjarðar, hins vegar finnst Vestfirðingum athyglisvert að flýta þurfi framkvæmdum við fjórðu göngin í NA-kjördæmi - enn og aftur á kostnað Dýrafjarðarganga. Rannsóknir og hönnun Fjarðarheiðarganga eru varla hafnar, en Dýrafjarðargöng hafa verið tilbúin til útboðs í næstum 10 ár! Þjóðin hefur ekki efni á því að gera önnur dýr mistök vegna fljótfærni við gangagerð, sbr. Vaðlaheiðargöng, þar sem mikill afsláttur var gefinn af rannsóknum. Framkvæmdin við Fjarðarheiðargöng verður stærsta jarðgangaframkvæmd allra tíma á Íslandi og mun soga til sín allt jarðgangafé svo árum skiptir. Á meðan verður varla borað í gegnum mörg önnur fjöll! Í hugum okkar Vestfirðinga væri frekari frestun framkvæmda við Dýrafjarðargöng og Dynjandisheiði afar óskynsamleg og í hróplegu ósamræmi við samgönguáætlun og þann sparnað sem hið opinbera ætlar sér að ná fram með sameiningu stofnana á svæðinu.

 

Ásthildur Sturludóttir.

 

Fréttablaðið þriðjudagurinn 28. júlí 2015

« Desember »
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31