A A A
  • 1922 - Gunnlaugur Sigurjónsson
  • 1974 - Þorleifur Kristján Sigurvinsson
  • 1980 - Var Jhon Lennon myrtur í New York
01.10.2015 - 21:26 | Júlía B. Björnsdóttir,Björn Ingi Bjarnason

Framnes í Dýrafirði á forsíðu hvalveiðirits

Forsíða bókarinnar er frá Framnesi í Dýrafirði. Ljósm.: Júlía B. Björnsdóttir.
Forsíða bókarinnar er frá Framnesi í Dýrafirði. Ljósm.: Júlía B. Björnsdóttir.
« 1 af 7 »

Í dag, fimmtudaginn 1. október 2015, var útgáfuhóf í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu í Reykjavík.


Þar var fagnað útgáfu bókarinnar –Stórhvalaveiðar við Ísland til 1915- eftir sagnfræðinginn Smára Geirsson í Neskaupstað. Bókin er hin glæsilegasta og alls 588 síður með 470 myndum sem margar hafa ekki sést á Íslandi fyrr.
Útgáfudagurinn í dag er í söguanda; því slétt 100 ár eru frá því hvalveiðar við Ísland voru bannaðar með lögum sem tóku gildi þann 1. október 1915.

Í bókinni er m.a. rakin saga allra hvalveiðistöðva Norðmanna á Íslandi árin 1883 – 1915 með fjölda glæsilegra mynda.

Sögufélagið gefur bókina út með stuðningi margra aðila. 

Forsíða bókarinnar er með mynd frá hvalveiðistöðinni að Framnesi í Dýrafirði.

Meira um bókina síðar.

« Desember »
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31