A A A
  • 1981 - Berglind Hrönn Hlynsdóttir
Tjaldanesi í Auðkúluhreppi í Arnarfirði. Þar eru mikil náttúruauðæfi bæði til sjós og lands. Spurningin er einungis sú, hvernig þau eru notuð. Ljósm. H. S.
Tjaldanesi í Auðkúluhreppi í Arnarfirði. Þar eru mikil náttúruauðæfi bæði til sjós og lands. Spurningin er einungis sú, hvernig þau eru notuð. Ljósm. H. S.

Eftirfarandi ályktanir gerði fundurinn um atvinnumál:

Fiskeldi

Fundurinn óskar fiskeldismönnum bæði á Vestfjörðum sem annarsstaðar, gæfu og gengis. Samt varar hann við því að menn fari of bratt í fjárfestingum og uppbyggingu og reisi sér hurðarás um öxl. Sígandi lukkan er best. Huga þarf mjög vel að því vistkerfi sem fyrir er í hinum vestfirsku fjörðum. Það hefur verið sannað, að  hægt er með ótrúlegum árangri að rækta bleikju og regnbogasilung í hinum ísköldu  vestfirsku ám og vötnum. Meira að segja í bæjarlæknum. Hér gæti orðið um vistvæna vestfirska stóriðju að ræða á landi ef menn vilja.

Óveiddur fiskur í sjónum

Ef ekkert er fast í hendi með útveg frá vissum stöðum, hrörnar byggðin. Þar duga ekki neinar gustuka- eða miskunnarúthlutanir. Þetta vita allir. Ef menn vilja breyta þessu verðum við að afhenda þessum stöðum aðgang að óveiddum fiski í sjónum til frambúðar. Svo einfalt er það.

Dýrafjarðargöng og Dynjandisheiði

Þá samþykkti fundurinn að færa stjórnvöldum þakkir fyrir fyrirhugaðar framkvæmdir við Dýrafjarðargöng og Dynjandisheiði.   

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30