A A A
  • 1927 - Rannveig Guðjónsdóttir
  • 1970 - RAIVO SILDOJA
08.02.2017 - 19:56 | Vestfirska forlagið,Hallgrímur Sveinsson

Flutningsgjöld á Íslandi eru sér á báti: Saga af flutningsgjöldum á landsbyggðinni

Bækurnar að vestan í Perlunni forðum.
Bækurnar að vestan í Perlunni forðum.

Alveg eru þau stór merkileg flutningsgjöldin á Íslandi.

Sjáiði til dæmis forlagið við ysta haf:

Það sendir með Íslandspósti 6 kg bókapakka Þingeyri – Ísafjörður – Reykjavík - Njarðvíkur. Slík sending kostaði fyrir áramót 1,324 kr. án vsk. með heimsendingu, þegar búið er að draga frá 15% afslátt. Búið á punktum.

Jæja. Svo skulum við segja að sama sending, 6 kg hafi farið með vöruflutningabíl sömu leið til baka Njarðvíkur – Reykjavík -  Ísafjörður – Þingeyri. Sem einu gildir. Og hvað haldið þið? Slík sending kostar 3,981 kr. án vsk þegar búið er að draga frá 15% afslátt. Hér koma við sögu gjöld eins og vörumeðhöndlun, olíugjald, afgreiðslugjald, stykkjavörugjald o. fl.

Sem sagt það munar 2,667 kr. á þessum blessuðu 6 bókakílóum eftir flutningsaðila.

Reikningsfróðir menn eru ekki í vandræðum með að reikna út hvað þetta munar mörg hundruð prósentum.

Er þetta hægt, Matthías?   

« Desember »
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31