A A A
  • 1927 - Rannveig Guðjónsdóttir
  • 1970 - RAIVO SILDOJA
VIð sýninguna um Fjallkonuna í Þjóðarbókhlöðunni.
VIð sýninguna um Fjallkonuna í Þjóðarbókhlöðunni.
« 1 af 4 »
Sýning um matar- og veitingahúsamenningu í Reykjavík á fyrri hluta 20. aldar var opnuð í Þjóðarbókhlöðu á safnanótt þann 8. febrúar 2013.
Samstarfsaðilar Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns um sýninguna eru Vetrarhátíð í Reykjavík, félagið Matur - saga – menning, Reynir Ingibjartsson, Kvennasögusafnið og Miðstöð munnlegrar sögu.
 
Sýningarstjóri er Djúpmaðurinn Ólafur J. Engilbertsson. 

Dýrfirðingurinn Kristín Dahlstedt og starfsemi hennar er viðfangsefnið í sýningunni um veitngahúsamenninguna.

 
Fjallkonan

Kristín Dahlstedt Jónsdóttir (1876-1968) fæddist að Botni í Dýrafirði. Átján ára gömul kynnist hún Magnúsi Hjaltasyni Magnússyni (1873-1916), skáldinu frá Þröm, og fyrirmyndinni að Ólafi Kárasyni Ljósvíkingi í skáldsögu Halldórs Laxness, Heimsljósi. Kristín sleit trúlofun þeirra Magnúsar þegar hann hafði tekið að sér aðra konu. Magnús hafði síðast samband við Kristínu þegar hann sat af sér dóm fyrir nauðgun í hegningarhúsinu  á Skólavörðustíg.

Haustið 1898 sigldi Kristín til Danmerkur. Hún starfaði næst­u árin á hótelum á Jótlandi og síðar í Kaupmannahöfn. Hún kom aftu­r til Íslands haustið 1905 og hafði þá hlotið góða menntun og starfsreynslu á hótel­um og veitingastöðum í Danmörku.

Kristín var strax ráðin til starfa á nýreistu glæsihóteli við Austur­stræti – Hótel Reykja­vík. Hún vild­i hins vegar ráða sér sjálf og hóf fljótlega rekstu­r á eigin veitinga­stað að Laugavegi 68. Þar kynntist hún eiginmanni sínumsem síðan vann við hlið hennar. Kristín átti eftir að reka eina fimm veitingastaði við Lauga­veginn undir heitinu Fjallkonan.

Kristín gerðist brautryðjandi um marg­t og innleidd­i nýj­ungar s.s. gas til ljósa og eldamennsku. Síðast rak hún veitingastað við Tryggvagötu og hætt­i veitinga­störfum rú­mlega sjötug eftir 50 ár á þeim vettvangi.

Ævisaga Kristínar Dahlstedt, sem Patreksfirðingurinn Hafliði Jónsson skráði,  kom út árið 1961 og þykir með merkari ævisögum, ekki síst í röðum ævisagna  kvenna. Nýlega var bókin endurútgefin hjá Vestfirska forlaginu.

Smellið á myndina til að skoða sýningarskrá:

« Desember »
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31