A A A
  • 1981 - Berglind Hrönn Hlynsdóttir
18.05.2015 - 22:33 | Björn Ingi Bjarnason

Dýrfirðingur dagsins

Arnar Sverrisson.
Arnar Sverrisson.
« 1 af 3 »

Dýrfirðingur dagsins er Arnar Sverrisson frá Þingeyri sem nú býr á Selfossi.

Arnar er fæddur 23. feb. 1967 og eru foreldrar hans Sverrir Karvelsson og Ósk Árnadóttir.

Arnar leit við í morgunkaffi í Alþýðuhúsinu á Eyrarbakka í dag, mánudaginn 18. maí 2015. Þar  var skrásetjari Þingeyrarvefsins  -BIB- staddur sem átt hefur samleið með Arnari í áratugi.

Rifjað var upp að í dag eru nákvæmlega 19 ár frá fyrstu ferðar Arnars á Selfoss  og leiddu til þess að hann er þar kvæntur Sólveigu Hilmarsdóttir og eiga þau fjögur börn.

Arnar Sverrisson hóf síðan rekstur fiskvinnslunnar Krossfisks ehf. á Stokkseyri árið 2001 sem hann starfrækir enn af orðlagðri vandvirkni og miklum afurðagæðum.

 

Björn Ingi Bjarnason.

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30