A A A
  • 1902 - fæddist Halldór Laxness
  • 1950 - Ólafía Sigurjónsdóttir
  • 1965 - Kristbjörg Bjarnadóttir
  • 1989 - Harpa Sjöfn Friðfinnsdóttir
  • 1990 - Snorri Karl Birgisson
  • 1998 - Magnús Freyr Jónasson
Önfirðingafélagið sigraði í fyrstu keppninni árið 1998. Í liðinu var Rakel Brynjólfsdóttir sem nú býr á Þingeyri. Sigurliðið.  F.v.: Rakel Brynjólfsdóttir frá Vöðlum, Gísli Rúnar Gíslason frá Flateyri, Ragnheiður Erla Bjarnadóttir stjórnandi keppninnar og Kristján Bersi Ólafsson frá Kirkjubóli í Bjarnardal.
Önfirðingafélagið sigraði í fyrstu keppninni árið 1998. Í liðinu var Rakel Brynjólfsdóttir sem nú býr á Þingeyri. Sigurliðið. F.v.: Rakel Brynjólfsdóttir frá Vöðlum, Gísli Rúnar Gíslason frá Flateyri, Ragnheiður Erla Bjarnadóttir stjórnandi keppninnar og Kristján Bersi Ólafsson frá Kirkjubóli í Bjarnardal.

Öflugustu átthagafélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa tekið sig saman og efnt til spurningakeppni.

Alls taka 16 átthagafélög þátt í keppninni:

Árnesingafélagið - Átthagafélag Héraðsmanna - 
Átthagafélag Sléttuhrepps - Átthagafélag Strandamanna - 
Barðstrendingafélagið - Breiðfirðingafélagið
Dýrfirðingafélagið - Félag Djúpmanna - Húnvetningafélagið
Norðfirðingafélagið - Siglfirðingafélagið - Skaftfellingafélagið
Stokkseyringafélagið - Súgfirðingafélagið - Vestfirðingafélagið
Önfirðingafélagið

 

Sú hugmynd vaknaði að endurvekja spurningakeppni átthagafélaganna sem haldin var í nokkur ár kringum aldamótin síðustu. Þar sem spurningakeppnir eru „í tísku“ núna, samanber - Útsvar - Gettu betur -  og öll PubQuiz-in, gæti það verið tilvalinn vettvangur til að vekja athygli á átthagafélögunum og virkja meðlimi þeirra. Ekki síst að fá unga fólkið til að taka þátt. Hugmyndin er því að hafa keppnina létta og skemmtilega, ekki of fræðilega.

Keppnin verður haldin í Breiðfirðingabúð, hefst 28. febrúar og lýkur á síðasta vetrardag. Höfundur spurninga er Gauti Eiríksson, grunnskólakennari.

 
Tilkynning frá "Spurningakeppni átthagafélaganna 2013"

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30