A A A
  • 1950 - Einar Helgason
  • 1978 - Gestur Magnús Magnússon
22.07.2017 - 12:28 | Vestfirska forlagið,Hallgrímur Sveinsson,Björn Ingi Bjarnason

Dýrafjörður í dag: - Tveir klógulir ernir flugu um innanverðan fjörðinn með arnsúg í flugnum

Kjartan Ólafsson kom konungi fuglanna til aðstoðar. Ljósm.: Lýður Jónsson.
Kjartan Ólafsson kom konungi fuglanna til aðstoðar. Ljósm.: Lýður Jónsson.

Í dag var farið fyrir Dýrafjörð: Kjaransstaðir, Drangar, Botn og Lambadalshlíð. Stórkostleg náttúruparadís. Allur gróður í blóma. Birkið angaði um allt. Enginn birkifeti sjáanlegur. Ekki mikið af grænjöxlum á berjalyngi. Kannski verður litið um ber í sumar. Sjáum til. Ekki öll nótt úti enn. Vegurinn slarkfær fyrir sæmilega bíla. Utan Drangagils munu Dýrafjarðagöng svo opnast í fyllingu tímans.

Tveir klógulir ernir flugu yfir. Konungur fuglanna. Tignarleg sjón.

Meðf. mynd er af Kjartani Ólafssyni, lækni, sem var sonur Ólafs Ólafssonar, skólastjóra á Þingeyri. Kjartan þjónaði Flateyrarlæknishéraði upp úr 1950. Eitt sinn er hann var á ferð í botni Dýrafjarðar, kom hann konungi fuglanna til aðstoðar. Hann hafði orðið fyrir hremmingum nokkrum. Var hann þurrkaður í fjárhúsi Ólafs skólastjóra yfir helgi. Var svo sleppt á vit örlaga sinna og“dró þá arnsúg í flugnum“.

Ljósmyndina tók Lýður Jónsson.



« Október »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31