A A A
  • 1929 - Gunnþórunn Friðriksdóttir
  • 1960 - Þórhallur Gunnlaugsson
  • 2000 - Guðlaugur Rafn Daníelsson
  • 2000 - Birta Rós Daníelsdóttir
Albert í félagsbúningi Nissa í Frakklandi 1953, tveimur árum áður en hann flutti heim.
Albert í félagsbúningi Nissa í Frakklandi 1953, tveimur árum áður en hann flutti heim.

Vel má rifja það upp í tilefni Frakklandsævintýris Íslands í dag, að Albert Guðmundsson, sem lengi var þekktasti íþróttamaður okkar í Evrópu og víðar, lék með atvinnuliði Nice eða Nissaborgar og þar lagði hann atvinnuskóna á hilluna 1955. Á morgun horfa menn til þessarar fallegu borgar á Miðjarðarhafsströnd Frakklands.

   Albert segir svo í bók sinni, Albert, eftir Gunnar Gunnarsson:

   „Nissa er óvenjuleg og falleg borg. Það er staður sem mér hefur alltaf þótt vænt um. Þegar ég var að ná mér eftir meiðslin, sem ég hlaut á Ítalíu, fékk ég eitt sinn leyfi til að fara í ferð til Nissa.

   Við vorum þar í viku , hjónin. Við höfðum komið þangað einu sinni áður, þegar þetta var. Það var með Nancy-liðinu, en þá stönsuðum við aðeins sólarhring. Það var á fegursta tíma ársins og mér verður alla tíð minnisstætt að konan sagði: Hér er svo fallegt, að ég vona að ég eigi aldrei eftir að búa hér.

   Hún vildi eiga minninguna um þessa paradís á jörðu og jafnframt möguleikann á að geta komið aftur. Nissa er stórkostleg borg. Hún er engu lík; mér dettur helst í hug sjónhverfing. „

   Svo mörg voru þau orð knattspyrnukappans okkar í þá daga og konu hans. Þess skal getið, að Nissa er fimmta stærsta borg Frakklands með rúmlega 344 þúsund íbúa innan borgarmarkanna. En tæp 1,2 milljón manns búa á stórborgarsvæðinu. (Wikipedia)

« September »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30