09.06.2010 - 13:49 | JÓH
Boðið að skoða Hótel Sandafell
Föstudaginn 4. júní var Dýrfirðingum og öðrum áhugasömum boðið að skoða gistiaðstöðu og veitingasal Hótel Sandafells. Þó nokkrar breytingar hafa verið gerðar á hótelinu síðastliðið ár, m.a. er búið að útbúa 5 ný svefnherbergi á efstu hæð hússins, og herbergi á Hótel Sandafelli þar með orðin 13 talsins. Jóhanna Gunnarsdóttir, hótelstýra, var mjög ánægð með viðtökurnar: "Það var setið við öll borð og fólk var ánægt". Boðið var upp á soðinn krækling og hljómsveitin Yxna frá Ísafirði spilaði fyrir gestina.