A A A
  • 1935 - Soffía Einarsdóttir

Hvanneyri í Borgarfirði. Næst er Hvanneyrarkirkja sem teiknuð var af Dýrfirðingnum Rögnvaldi Ólafssyni sem og fleiri hús þar.
.
Bjarni Guðmundsson með sagnagöngu á Hvanneyri sunnudaginn 8. júlí 2012
.

Safnadagur 8. júlí - Mjólkursagnaganga ofl.
 

Hinn árlegi Safnadagur er að þessu sinni haldinn sunnudaginn 8. júlí nk.  Að venju verður verður af því tilefni gerður nokkur dagamunur í Landbúnaðarsafninu á Hvanneyri
.
Safnið verður opið kl. 12-17.

 

Aðgangur er að safninu verður ókeypis á Safnadegi en frjáls framlög gesta til safnsins eru þegin með þökkum.

 

Leiðsögn verður veitt í safninu og um Halldórsfjós, sem brátt mun væntanlega hýsa aðalsýningu safnsins.

 

 Kl. 14 verður sagnaganga um gamla skólastaðinn á Hvanneyri, þar sem m.a. má sjá sérstætt og merkilegt dæmasafn íslenskrar húsagerðarlistar frá öndverðri síðustu öld.

 

Sérstaklega verður sagt frá Halldórsfjósi svo og Mjólkurskólanum sem stofnaður var á Hvanneyri haustið 1900, og opnaði eina fyrstu starfsmenntabraut kvenna á Íslandi - fyrir rjómabústýrur. 

  

Á göngunni verður líka kynnt nýtt göngu- og reiðleiðakort af landi Hvanneyrar. Sögumaður verður Dýrfirðingurinn á Hvanneyri, Bjarni Guðmundsson. 

 

Kl. 14-17 verður vöfflukaffi fáanlegt í Skemmunni, elsta húsi staðarins, sem nú hefur verið pússað upp og gert að safnaðarheimili og annarri félagsaðstöðu skóla og staðar.

 

Á Safnadeginum á Hvanneyri fer á sama tíma einnig fram landskeppnin Ull í fat. Keppnin er að þessu sinni á vegum Ullarselsins.  

Eins og heiti keppninnar gefur til kynna verður þar keppt í ullarvinnslu frá hráefni til fullunninnar vöru. 

 
Ullarselið hefur verið sigursælt í þessum keppnum á undanförnum árum, þar sem glímt hefur verið við vinnslu og gerð hina athyglisverðustu ullarplagga.
.


Kirkjubólsfólk í Dýrafirði heima og heiman.

Bjarni Guðmundsson á Hvanneyri flytur hér lög sín við ljóð Guðmundar Inga Kristjánssonar á Kirkjubóli í Bjarnardal í Önundarfirði. Þetta var á samkomu í Holti í Önundarfirði fyrir um áratug. Með honum á myndinni eru kona hans, Ásdís Bragadóttir, og systkini hans; þau Sigrún og Guðmundur Grétar sem búa á Kirkjubóli í Dýrafirði.
.

.

« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31