A A A
  • 1981 - Berglind Hrönn Hlynsdóttir
08.07.2017 - 07:11 | Vestfirska forlagið,Hallgrímur Sveinsson,Bændablaðið

Bændablaðið: - Eitt skemmtiferðaskip mengar jafn miklu sóti daglega eins og ein milljón bílar!

 Skemmtiferðaskip í höfn á Ísafirði. Ljósm.: Gústi.
Skemmtiferðaskip í höfn á Ísafirði. Ljósm.: Gústi.

Í því merka blaði, Bændablaðinu, lesum við að sautján stærstu gámaflutningaskip heimsins losi meiri brennistein út í andrúmsloftið árlega en allir bílar í heiminum. Og eitt skemmtiferðaskip mengar jafn mikið daglega eins og ein milljón bílar! Blaðið segir að þetta komi fram í nýlegri heimildarmynd, Sea Blind, eftir Bernice Notenboom og Söruh Robertson.

Nýlega var sagt frá því í fréttum RÚV að um 300 skemmtiferðaskip komi árlega til Kaupmannahafnar. Geigvænleg mengun segja Danir. Jafngildir 300 milljónum bíla á ferð daglega eftir því að dæma.

Búist er við að um eða yfir 100 skemmtiferðaskip komi til Ísafjarðar á þessu ári. Jæja. Nú geta spekingar vorir reiknað. Ef það væri 1. apríl mundi enginn trúa þessu.

En ekki lýgur Bændablaðið frekar en Mogginn!



« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30