05.12.2016 - 06:45 | Vestfirska forlagið,Morgunblaðið,Hallgrímur Sveinsson
Bækurnar að vestan: - "Átthagar" - Ísfirðingar margra landa segja frá eftir Herdísi Hübner
Í þessari bók er lesendum boðið í heimsreisu með viðkomu á Jamaica, Sri Lanka, El Salvador, Rússlandi, Þýskalandi, Póllandi, Ungverjalandi, Tælandi og Ástralíu. Jafnframt er lagt í tímaferðalag nokkra áratugi aftur í tímann því hér birtast sögur frá uppvaxtar- og æskuárum níu kvenna á ýmsum aldri í þessum fjarlægu löndum. Konurnar eiga það sameiginlegt að hafa búið á Ísafirði í fjölda ára en að öðru leyti eru þær ólíkar, hafa ólíkan bakgrunn og hver og ein er fulltrúi sjálfrar sín og einskis annars. Á Ísafirði hafa þær unnið margvísleg störf og allar hafa þær lagt mikið af mörkum til lífsins í bænum, auðgað það og eflt með ýmsu móti og eru sannkallaðir máttarstólpar samfélagsins.
Þessi bók er afar gott innlegg í umræðu dagsins.
Þessi bók er afar gott innlegg í umræðu dagsins.