A A A
  • 1981 - Berglind Hrönn Hlynsdóttir
28.09.2015 - 21:22 | Ferðamálastofa,BIB

Auglýst eftir umsóknum um styrki

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða auglýsir eftir umsóknum um styrki til uppbyggingar á ferðamannastöðum árið 2016. Frestur til að sækja um rennur út 16. október.

 

Verkefni verða að uppfylla að minnsta kosti eitt af eftirfarandi skilyrðum:

  • Verkefnið er til uppbyggingar, viðhalds og verndunar mannvirkja og náttúru á ferðamannastöðum í eigu opinberra aðila eða á náttúruverndarsvæðum.
  • Verkefnið er til framkvæmda sem varða öryggi ferðamanna og verndun náttúru á ferðamannastöðum í eigu opinberra aðila jafnt sem einkaaðila.
  • Verkefnið er til undirbúnings- og hönnunarvinnu sem er nauðsynleg vegna framkvæmda á ferðamannastöðum eða á náttúruverndarsvæðum.

Sótt er um á rafrænni þjónustugátt Ferðamálastofu. Byrja þarf á að skrá sig inn með Íslykli eða rafrænum skilríkjum í farsíma. Þegar innskráningu er lokið skal velja flipann Umsóknir.

 

Sjá nánar hér

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30