A A A
  • 1950 - Margrét Guðjónsdóttir
  • 1955 - Angantýr Valur Jónasson
12.07.2015 - 07:17 | Úr hinum vestfirska sagnaarfi:

Álagningarprósentan

Guðbjartur Jónsson - Vagnstjóri á Flateyri. Ljósm.: BIB
Guðbjartur Jónsson - Vagnstjóri á Flateyri. Ljósm.: BIB
« 1 af 2 »

Guðbjartur Jónsson, veitingamaður og Vagnstjóri á Flateyri, er Samvinnuskólagenginn maður. Í Samvinnuskólanum lærði Bjartur allt er varðar álagningu verslunar á vöruna og hversu mikið munaði um hvert prósentustigið í þeim efnum. Guðbjartur er landskunnur fyrir mismæli sín og verður honum oft hált á svelli máltækjanna.

        Eitt sinn var hann að prédika yfir félögum sínum gildi þess að huga að hinu smáa og menn mættu alls ekki gleyma gildi þess í verslunarrekstrinum. Vagnstjórinn endaði ræðu sína og sagði drjúgur með sig:

        Margt smátt gerir lítið eitt.

 

Úr hinum vestfirska sagnaarfi:

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30