A A A
  • 1964 - Hermann Drengsson
29.06.2016 - 09:05 | Vestfirska forlagið,Hallgrímur Sveinsson

Af furðum Vestfjarða: - Á Þingeyrarflugvöllur bara að vera augnayndi?

Séra Stefán Eggertsson sóknarprestur á Þingeyri. Hann var frumkvöðull flugmála og fjölda annarra framfaramála  í Dýrafirði á sínum tíma. Nú vantar okkur sárlega einhvern hans líka.
Séra Stefán Eggertsson sóknarprestur á Þingeyri. Hann var frumkvöðull flugmála og fjölda annarra framfaramála í Dýrafirði á sínum tíma. Nú vantar okkur sárlega einhvern hans líka.
« 1 af 2 »

Endurbygging Þingeyrarflugvallar 2006, sem er varaflugvöllur Ísfirðinga, kostaði stórfé.

Það er ein af furðum Vestfjarða að völlurinn, trúlega flottasti flugvöllur í fjórðungnum, skuli hafa verið lokaður mörg undanfarin ár. Mönnum urðu að vísu á alvarleg mistök við byggingu flugbrautarinnar. En handvammir eru bara til að leiðrétta. En hvers vegna er það ekki gert? Sennilegasta skýringin á því er að íslensk stjórnsýsla er meira og minna ónýt. Sjálfsagt hátt í milljarðs króna mannvirki á núvirði látið afskiptalaust.

Dýrfirðingar horfa dolfallnir á. Og Ísfirðingar geta ekki notað varavöllinn sinn! Tæplega 30 flugferðir féllu niður til Ísafjarðar bara í maí s. l. eins og komið hefur fram.

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30