A A A
  • 1949 - Guðberg Kristján Gunnarsson
  • 1962 - Unnur Cornette Bjarnadóttir
Kennth Máni kemur fram á Act Alone á Suðureyri
Kennth Máni kemur fram á Act Alone á Suðureyri
Einleikjahátíðin Act alone hefst á Suðureyri í dag, miðvikudaginn 5. ágúst 2015 og stendur fram á laugardag. Boðið verður uppá einstaka dagskrá fyrir alla aldurshópa og rúsínan í pysluendanum er að það er frítt á alla viðburði hátíðarinnar, sem eru samtals 21 að þessu sinni. Act alone var fyrst haldin árið 2004 á Ísafirði en árið 2012 flutti hátíðin búferlum til Suðureyrar, þar sem fyrirtækið Fisherman er bakhjarl hátíðarinnar.

Í fyrra sóttu hátíðina um 3000 manns og búast má við svipuðum fjölda í ár í Félagsheimili Súgfiðringa og aðra staði þar sem einleikir, tónleikar, dans og aðrir viðburðir eiga sér stað.

Allir aldurshópar geta skemmt sér saman þessa einstöku helgi. Í ár verður einnig hægt að fara ókeypis á Act alone því boðið verður uppá langferðabifreiðaferðir frá Ísafirði í hið einstaka sjávarþorp Suðureyri á Act alone.


Á Act alone 2015 verður boðið uppá allt besta af einleikjaárinu. Meðal þess sem boðið verður uppá á Act alone 2015 má nefna vinsælasta einleik ársins sjálfan Kenneth Mána. Leikkonan ástsæla Edda Björgvins býður uppá leikinn Húmor er dauðans alvara, Katrín Gunnarsdóttir sýnir dansverkið Saving History, Karl Örvarsson eftirherma bregður sér í ótal gerfi, Þórarinn Eldjárn les úr verkum sínum og tónlistarmennirnir Lára Rúnars og KK verða með einstaka tónleika. Að vanda verður boðið uppá veglega dagskrá fyrir börn. Ævar vísindamaður verður með vísindanámskeið og Ísgerður Gunnarsdóttir verður með leik og söngskemmtun. Einnig verður blöðrulistamaður á staðnum og galdrar fram ýmiskonar blöðrulistaverk. Margt fleira einleikið og einstakt verður í boði á Act alone 2015 má þar nefna innsetninguna Herðing sem mun fara fram í einum af hinum fjölmörgu harðfiskhjöllum sjávarþorpsins.

Nánari upplýsingar um Act alone og dagskrá ársins má nálgast á heimsíðu hátíðarinnar
 www.actalone.net.
« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31