Á þvottaplaninu hjá henni Diddu og N-1 á Þingeyri
Við fórum á þvottaplanið hjá henni Diddu á Þingeyri í gær að skola af kappakstursbíl forlagsins . Það er eitthvað sem maður verður auðvitað að gera öðru hvoru. Þar hittum við fyrir þrjá gegnheila Vestfirðinga í sömu erindum. Þá var það rifjað upp, að þegar Vestfirska forlagið var komið með áletrun sína á laglegan fólksbíl, Mitsubishi Outlander, hjá léttadrengnum, sagði Hemmi Gunn:
„Nú, það er bara svona! Kominn á kappakstursbíl! Þú verður þá að koma þér upp dekkjagengi inn við Dýrafjarðarbrú þegar þú ferð á Ísafjörð eins og þeir í Formúlunni. Þá ískrar nú í hjá kalli.“
Meðal þeirra sem voru á þvottaplaninu:
Hilmar Pálsson frá Súgandafirði, til vinstri, VÍS maður með meiru, lætur vaða á tækið, sem varla sást í fyrir aur, komandi yfir Hrafnseyrarheiði. Því miður sést jeppinn hans ekki, né konan hans hún Guðbjörg Skarhéðinsdóttir frá Þingeyri, sem fylgdist með sínum manni í gegnum bílrúðuna. Hákon Kristjánsson úr Haukadal var nú aldeilis í stuði. Hann sækir annars mikla björg í þjóðarbúið á b/v Júlíusi Geirmundssyni, þegar hann er ekki að hjálpa kallinum í búskapnum.
Og svo var hann Friðbert Kristjánsson, bóndi í Hólum, að skola af henni Stóru-Bertu, léttur í skapi að vanda. Þær þurfa sína sinningu þessar landbúnaðarvélar ef allt á að vera í lagi.
Hallgrímur Sveinsson.