A A A
  • 1949 - Guðberg Kristján Gunnarsson
  • 1962 - Unnur Cornette Bjarnadóttir
15.11.2016 - 18:52 | Þórhallur Sófusson Gjöveraa,Vestfirska forlagið

60 ár frá því tundurdufl grandaði Fylki á Halamiðum

Fylkir RE 161 frá Reykjavík.
Fylkir RE 161 frá Reykjavík.
Í gær, 14 nóvember 2016 voru liðin 60 ár frá því að nýsköpunartogarinn Fylkir RE 161 frá Reykjavík fékk tundurdufl í veiðarfærin sem sprakk við síðu þess með þeim afleiðingum að skipið sökk á nokkrum mínútum þegar það var að veiðum á Halamiðum.
Þetta gerðist þann 14. nóvember 1956.

Áhöfnin, 32 menn, komust í björgunarbátinn, og var bjargað þaðan um borð í togarann Hafliða SI 2 frá Siglufirði á síðustu stundu.

Fylkir RE 161 var 677 brl, smíðaður hjá Cook Welton & Gemmell Ltd í Beverley á Englandi árið 1948.
« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31