20.07.2017 - 19:10 | Vestfirska forlagið,Hallgrímur Sveinsson,Björn Ingi Bjarnason
20. júlí - Þorláksmessa að sumri
Þorláksmessa á sumri er 20. júlí. Verndardýrlingur Íslendinga er Þorlákur helgi.
Sumarið 1198 var helgi Þorláks Þórhallssonar samþykkt á Alþingi og bein hans tekin upp og skrínlögð 20. júlí.
Þorláksmessa á vetur er 23. desember, á dánardegi hans.
Þorláksmessa á sumar var til siðaskipta einn helsti hátíðisdagur sunnanlands og þá var haldin mikil samkoma í Skálholti.
Síðustu ár eru einnig til dæmi um skötuveislur þennan dag.