18. maí 2017 - Alþjóðlegi safnadagurinn á Íslandi
Alþjóðlegi safnadagurinn verður haldinn hátíðlegur í dag, 18. maí 2017 og munu söfn víðsvegar um landið bjóða upp á sérstaka dagskrá í tilefni dagsins. Markmið alþjóðlega safnadagsins er að kynna og efla safnastarf í heiminum. Yfirskriftin fyrir árið 2017 er:
Söfn og umdeild saga: Að segja það sem ekki má segja í söfnum.
Dagskráin á Íslandi:
Sýnileiki á samfélagsmiðlum
Í tilefni af safnadeginum verður mikil virkni á samfélagsmiðlum þar sem söfn sýna frá starfi sínu og dagskrá. Safnasnappið mun sýna frá safnastarfi og myndir frá deginum og aðdraganda hans verða merktar með myllumerkinu #safnadagurinn á instagram og facebook.
Söfn um allan heim
Alþjóðlegi safnadagurinn er haldinn ár hvert þann 18. maí af International Council of Museums (ICOM). Þátttakendur eru um 35.000 söfn í 140 löndum. Söfn um allan heim skipuleggja dagskrá þann dag, helgina eða jafnvel vikuna alla sem 18. maí ber upp á og hefur það verið gert öll árin síðan 1977.