A A A
  • 2012 - Freyja Dís Hjaltadóttir
05.01.2015 - 07:22 | Vestfirska forlagið,BIB

-Vestfirskir sjómenn í blíðu og stríðu- á Kleifabergið

Georg Rúnar Ragnarsson vélstjóri á aflaskipinu Kleifabergi.
Georg Rúnar Ragnarsson vélstjóri á aflaskipinu Kleifabergi.
« 1 af 3 »

Út kom nokkru fyrir jól hjá Vestfirska forlaginu  bókin  -Vestfirskir sjómenn í blíðu og stríðu-  alþýðusögur í léttum dúr að vestan. Hallgrímur Sveinsson og Bjarni G. Einarsson tóku saman.

Bókin hefur vakið mikla ánægju þeirra sem lesið hafa.

Í gær komst bókin í hendur Georgs Rúnars Ragnarssonar frá Flateyri sem nú býr í Kópavogi. Hann er vélstjóri á aflaskipinu og frystitogaranum Kleifabergi RE sem var með mest aflaverðmæti allra íslenskra skipa árið 2014 eða um þrjá milljarða. Skipið veiddi allls 11.246 tonn. -Vestfirskir sjómenn í blíðu og stríðu- eru því á leiðinni um borð í Kleifabergið.

Í kynningu bókarinnar segir:

Vestfirskir sjómenn eru karlar í krapinu og kalla ekki allt ömmu sína. Það má ekki minna vera en þeim sé helguð ein bók í heiðursskyni þar sem eingöngu er slegið á léttari strengi.

   „Gamanmál eru nauðsynleg, en að baki þeim býr alvara lífs og dauða. Það vitum við sjómennirnir ef til vill betur en aðrir.“ Svo mælti hinn landsþekkti skipherra, Eiríkur Kristófersson, sem var Vestfirðingur í húð og hár. Jón Sigurðsson kallaði gömlu þjóðsögurnar  alþýðusögur. Í bók þessari eru eingöngu vestfirskar alþýðusögur í léttum dúr sem allar hafa birst áður. Sumar margoft.

    Hér eru lögmál sagnfræðinnar ekki höfð að leiðarljósi heldur eingöngu skemmtigildið. Margar af þessum frásögnum eru þó dagsannar. Verður ekki farið nánar út í það. Heimildir látnar lönd og leið. Þeir sem hafa gaman af að hlægja ættu að hafa gagn af þessari bók.  Vestfirska forlagið vonar að yfir henni sé hægt að brosa, hlægja og jafnvel skella uppúr ef út í það er farið!    Næsta bók í þessum flokki verður helguð vestfirskum stjórnmálamönnum.

 

Vestfirska forlagið 20 ára.

http://vestfirska.is/index.php/is/

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30