A A A
  • 2012 - Freyja Dís Hjaltadóttir
10.06.2016 - 17:49 | Vestfirska forlagið,Hallgrímur Sveinsson

Þáttur úr sögur Hrafnseyrar - Sigurbjörn Einarsson: - Meistari orðsins og augnabliksins.

3. ágúst 1980 á Hrafnseyri. Frú Vigdís Finnbogadóttir, forseti Íslands, heldur ræðu. Biskupshjónin, Magnea Þorkelsdóttir og Sigurbjörn Einarsson, sitja næst henni. Ljósm.: BIB
3. ágúst 1980 á Hrafnseyri. Frú Vigdís Finnbogadóttir, forseti Íslands, heldur ræðu. Biskupshjónin, Magnea Þorkelsdóttir og Sigurbjörn Einarsson, sitja næst henni. Ljósm.: BIB
« 1 af 14 »

Sá eftirminnilegi maður, herra Sigurbjörn Einarsson biskup, var sannkallaður meistari orðsins. En hann var einnig meistari augnabliksins þegar það átti við.

   Frá því er að segja, að hinn 3. ágúst 1980 var eftirminnilegur dagur í sögu Hrafnseyrar. Þá fóru þar fram mikil hátíðahöld í tilefni af 100 ára dánarafmæli forsetans. Nokkur þúsund manns mættu á svæðið. Sigurbjörn Einarsson vígði þá Minningarkapellu Jóns Sigurðssonar. Við það tækifæri var fjöldi manns var í anddyri kapellunnar og safnsins. Nokkurt skvaldur var þar í gangi sem ekki var beint á dagskrá en olli leiðinda truflun.

   Í miðri vígsluræðu stansaði biskup. Tók málhvíld, leit yfir sviðið og steig vel til hliðar við gjallarhornið og græjurnar sem tóku upp hvert hans orð fyrir útvarp og sjónvarp. Síðan leit hann nokkuð þungbrýnn yfir salinn og fram í anddyrið. Sagði svo þessi eftirminnilegu orð:

   „Ég hélt að ég ætti að hafa orðið hér í dag.“

   Við þetta datt allt í dúnalogn og mátti heyra saumnál detta það sem eftir var athafnarinnar. Biskup vissi vel hvað hann var að gera. Hastaði á liðið, veitti áminningu, en þó þannig að ekkert heyrðist í upptökutækjum.

Meistari augnabliksins! 


« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30