A A A
Margan róna hef ég hýst
Og horft á allt hið nýja.
Í byggingum ég brúkast víst
Og blæs oft reyk til skýja.
Svar
Sést ég oft við sólar tá
Með sumum geng í þessum heimi.
Í búrílátum bjó ég þá
Býsna mikinn fróðleik geymi.
Svar
Í heyskapnum ég hef minn rétt
Handgenginn er trilluköllum.
Hjá konu sem er kát og nett
Kom við tau í bæ og höllum.
Svar
Hjá fugli er ég fínlegt skraut
Í fjöru báran flaðrar létt.
Var þó oft á veiði braut
Vinsæll fyrr hjá kvenna stétt.
Svar
Í orustunum áður fyrr
oft í skýjum séður .
Um stássstofunnar stoltu dyr
Stundum við mig lækur kveður.
Svar
Bændaprýði ekki er að
Oft af hestum var ég dreginn.
Í votu grasi víst er það
Villtur maður fann mig feginn.
Svar
Oft er undir sól að sjá
svo í orðaflaumi.
Stafkarlinn ég styrkja má
Og styð við hurð í laumi.
Svar
Margir sóttu björg í bú
í bjartri hvílu alltaf er.
Karlmannsnafn er kenning sú
mörg kostafleyta nafnið ber.
Svar
Ferleg ógn í frumskógum
fyllir brjóst hjá elskendum.
Hans var gætt af húsmæðrum
og hjalað við á síðkvöldum.:
Svar
Áður kýldur óblítt var
oft við tærnar snillinganna.
Í véladóti þekkist þar
En þiðna í krafti hlývindanna.
Svar
« Maí »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    
Fjölkunnugir forðum nýttu sér
Ferðamönnum einkar gagnlegt þý
Fjölda af því finna muntu hér
Finnst það gjarna hurðar götum í
Höf: Líni Hannes Sigurðsson
Eldri spurningar & svör