A A A
Konunafnið stundum stytt
Staurar uppi bera
Lögð í sjó á miðin mitt
Mun í bókum vera
Sigurður G. Gunnarsson
Svar
Í reikning gjarna gerir hratt
og glópar yfir fara.
Yfirdregið gleymist glatt
Götunafn er bara
Sigurður G. Gunnarsson
Svar
Hana gerði margur mér
Má á sumum líta
Stundum hún á himni er
Hratt ef menn sér flýta
Höf: Sigurður G. Gunnarsson
Svar
Sunnar hann um loftið líður
Í Látrabjargi finna má
Á skeiði margur þykir þýður
Þyrlast reykur honum frá.
Höf Sigurður G. Gunnarsson
Svar
Oft við byltu birtist það
Björg hann mörgum selur.
Stundum kemur hratt í hlað
Á himni sólu felur.
Höf: Sigurður G. Gunnarsson
Svar
Giskaðu á og gettu hvað
gagnast fiskimönnum
Á fugl sem byssa beinist að.
Best á ís og fönnum.
Höf: Sigurður G. Gunnarsson
Svar
Klukka boðar bænastund
Birtir dægrastundir
Klukka prýðir gróna grund
Er gjarna pilsum undir
höf: Sigurður G. Gunnarsson
Svar
Boðar mönnum messugjörð
mælir daga og stundir.
Vex um heiðar holt og börð,
höfð er pilsum undir.
höf. Ólöf Ó. Briem
Svar
Fyrir mörgum árum auglýsti dagblað eftir bestu lýsingunni á því hvað peningar eru í raun og veru. Af tillögum sem bárust í hundruða tali þótti þessi best: “Peningar eru alþjóðlegur gjaldmiðill sem veitir þér allt nema hamingju, og þeir eru þér vegabréf til allra staða nema til himnaríkis.”
Svar
Glímu þreyttu glaðir menn
gott og vont í munni í senn.
Mynda orðin margir tvenn
marka lömbin sumir enn.
Svar
« Maí »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    
Fjölkunnugir forðum nýttu sér
Ferðamönnum einkar gagnlegt þý
Fjölda af því finna muntu hér
Finnst það gjarna hurðar götum í
Höf: Líni Hannes Sigurðsson
Eldri spurningar & svör