A A A
Oft í tafli verð ég til
Teljast lúkur stundum vera
í búskap vel ég nýtast vil
verð og þunga byrði að bera
Líni Hannes Sigurðsson
Svar
Flestu með því festa má
Flytur skip úr stað
Leyfir flug um loftin blá
Ljúft í munni er það
Líni Hannes Sigurðsson
Svar
Flesta þar í finna má
Fénaðar klaufa kennin geymast
Ökutæki stór og smá
Færð eru í gögn svo ei þau gleymast
Líni Hannes Sigurðsson
Svar
Kúra þar í kríli smá
Kinstrin öll af líni
Ávexti má ávalt fá
Og einnig flösku af víni
Líni Hannes Sigurðsson
Svar
Með árunum allt að engu fer
Örlítið bunga ég inn að framan
Sagt er að hart sé undir mér
Svo og á tólum er falla saman
Líni Hannes Sigurðsson
Svar
Forðum var ég tákna tól
Traustur spennu viður
Búin er ég til í ból
Boginn,með hausinn niður
Líni Hannes Sigurðsson
Svar
Víst mig kalla vindu má
Varlega skal þó farið hér
Er í stokk sem oft má sjá
Einnig er sungið yfir mér
Líni Hannes Sigurðsson
Svar
Ég er ilfat af ýmsun gráðum
Einnig nýttur á veiðitólum.
Oft er ég þrykktur á enda á þráðum
Þarflegur talinn á báðum pólum.
Líni Hannes Sigurðsson
Svar
Af börnum er ég vinsæll víst
Valinn til leikja af öðrum þó
Flest hjá ýmsum um mig snýst
oft ég hvíli einn í ró.

Líni Hannes Sigurðsson
http://lhs.blog.is
Svar
Ég og funi fylgjast að
forðum oft mér sveiflað var
með Guði oft ég geng um hlað
Geymist og nafn á högna þar
Höf: Líni Hannes Sigurðsson
Svar
« Maí »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    
Fjölkunnugir forðum nýttu sér
Ferðamönnum einkar gagnlegt þý
Fjölda af því finna muntu hér
Finnst það gjarna hurðar götum í
Höf: Líni Hannes Sigurðsson
Eldri spurningar & svör