Við lítinn vog hún leikur sér
líkar vel með sviðum
Vel um hana í hendi fer
heldur oft til í liðum Líni Hannes SigurðssonSvar
Oft er staðið á henni
Einnig í hálsi er hún
Vont getur verið að ná’enni
Víst er að úr þér fer’ún Höf: Líni Hannes SigurðssonSvar
Ég er minnstur og mestur
Mikið nýttur í vélum
Er í rjáfrinu efstur
Oft á móum og melum.
Höf: Líni Hannes SigurðssonSvar
Oft er fiskur undir mér
Einnig ég rís úr köldum sæ
Egg mu ávalt fylgja hér
Áar bjuggu þar á bæ. Höf: Líni Hannes SigurðssonSvar
Fer á unda ungum konum
Er ofarlega á festingunni
Ýmsir hafa yndi af honum
Einkum þó í umferðinni Höf: Líni Hannes SigurðssonSvar
Fjölkunnugir forðum nýttu sér
Ferðamönnum einkar gagnlegt þý
Fjölda af því finna muntu hér
Finnst það gjarna hurðar götum í Höf: Líni Hannes SigurðssonSvar
Á mér hvíla opin sjö
Um mig kostur ávalt fer
Hér í sveit eru heitin tvö
Höft eru talin vera af mér Líni Hannes SigurðssonSvar
Á flestum skipum finna má
Fyllir sali ljóma
Oft í kollum kviknar á
Í kökum prýddum rjóma Líni Hannes SigurðssonSvar
Ættar kollur eitt sinn var
Oft ég blika á festingunni
Ungir fá hér ávalt far
Fylgispakur eymreiðinni. Líni Hannes SigurðssonSvar
Ættar kollur eitt sinn var
Oft ég blika á festingunni
Ungir fá hér ávalt far
Fylgispakur eymreiðinni. Líni Hannes SigurðssonSvar