24.10.2011 - 23:32 | JÓH
Hjónaballið haldið í 77.sinn
Nú fer að líða að Hjónaballinu en það verður haldið í 77. sinn í félagsheimilinu á Þingeyri laugardaginn 12.nóvember. Að vanda verður boðið upp á góðan mat en matseðilinn má lesa í heild sinni neðst í fréttinni. Veislustjórn verður í höndum Benna Sig. og hann mun einnig leika fyrir dansi að borðhaldi loknu ásamt hljómsveit sinni X-Press. Forsala aðgöngumiða verður í Félagsheimilinu laugardaginn 12. nóvember milli klukkan 13:00 og 14:00. Aldurstakmark 18 ár. Húsið opnar svo kl. 19:30 og borðhald hefst hálftíma síðar. Gengið verður í hús og þátttaka skráð helgina 30 okt. - 1. nóv. Einnig má skrá sig í síma 864-7616 (Sonja) eftir klukkan 16:00...
Meira
Meira



















