A A A
  • 1935 - Soffía Einarsdóttir
Heilsíða í Morgunblaðinu 18. maí 2015
Heilsíða í Morgunblaðinu 18. maí 2015
« 1 af 3 »
Fjórða bókin er komin út í bókaflokki Vestfirska forlagsins, Hornstrandir og Jökulfirðir. Ýmsar frásagnir af horfnu mannlífi.

Þar eru birtar fjölbreyttar, áhugaverðar og spennuþrungnar frásagnir úr ýmsum áttum, sem tengjast mannlífi og menningu úr Sléttuhreppi og Grunnavíkurhreppi norðan Ísafjarðardjúps. Í kynningu segir: „Í Hornstrandabókum forlagsins er svo til eingöngu gamalt vín á nýjum belgjum, frásagnir sem flestir eru búnir að gleyma, en geta nú gengið að á einum stað." Bókin er 132 blaðsíður í þægilegu broti.


Í þessu fjórða bindi má finna frásögn Guðrúnar Guðvarðardóttur um hvaða stað henni þótti vænst um. Þá er viðtal við hana úr Þjóðviljanum sem Sigurdór Sigurdórsson skrifaði: „Hef sett mér það mark að ganga alla Vestfirði." Kjartan Ólafsson minnist Guðrúnar, sem hann kallaði Vestfjarðakonuna. Fjallað er um byggingu Hornbjargsvita, en hann var reistur 1930 við erfið skilyrði. Skrá er yfir alla vitaverði sem þar störfuðu og viðtal við Jóhann Pétursson vitavörð eftir Vilborgu Harðardóttur: „Hef aldrei þekkt að vera einmana á Horni."


Birt er hugljúf frásögn eftir Ragnheiði Jónsdóttur í Kjós í Jökulfjörðum sem hún skrifaði um hann Bleik sinn. Svo eru frásagnir Gunnars Friðrikssonar og Vilmundar Jónssonar af Guðmundi Pálmasyni „vitaverði við erfiðasta vita landsins.“ Þá er þar fjórði og síðasti hluti frásagnar Gísla Konráðssonar af þeim félögum Halli á Horni, Snorra presti og Hallvarði Hallssyni. Ferðasaga frá Vestfjörðum 1886-1887: Hornstrandir seinni hluti eftir Þorvald Thoroddsen, sem mun vera ein merkilegasta frásögn sem skrifuð hefur verið um Hornstrandir. Örlygur Hálfdanarson bókaútgefandi minnist Þórleifs Bjarnasonar, námsstjóra og rithöfundar.

Kjartan T. Ólafsson, sem er einn allra elsti núlifandi Hornstrendingur og ern vel, skrifar viðamikla frásögn sem hann nefnir Æskuminningar og atvinnusögu úr Aðalvík. Loks skal nefna frásögn Alexanders Einarssonar sem hann skrifar um æviferil föður síns, Einars Bæringssonar, hreppstjóra á Dynjanda í Grunnavíkurhreppi í Jökulfjörðum.

 

Vestfirska forlagið

« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31