A A A
  • 1949 - Guðberg Kristján Gunnarsson
  • 1962 - Unnur Cornette Bjarnadóttir
11.08.2016 - 06:53 | Morgunblaðið,Vestfirska forlagið

Njáll Þórðarson - Fæddur 11. júní 1932 - Dáinn 21. júlí 2016 - Minning

Njáll Þórðarson (1932 - 2016)
Njáll Þórðarson (1932 - 2016)
Njáll Þórðarson fæddist 11. júní 1932 á Hrafnseyri við Arnarfjörð. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Blönduósi 21. júlí 2016.

Foreldrar hans voru: Daðína Jónasdóttir og Þórður Njálsson. Þeim varð 11 barna auðið.

Systkini Njáls voru: Ólafur Jón, hann er látinn. Hreinn, Ólafur Veturliði, Nanna, Rósamunda, Þorkell, Sigurður Júlíus, en hann lést af slysförum, og Halla. Tvær systur hans létust sem ungbörn. Njáll átti einn fósturbróður, Sigurð Guðna Gunnarsson.

Eiginkona Njáls var Gréta Jósefsdóttir. Þau eignuðust tvö börn, þau eru: 1) Arís, börn hennar eru: Jón Elvar, Snævar Njáll og Amanda Millý Mist. 2) Þórður Daði, börn hans eru: Freyja, Oliver Ari og Emil Ari.

Njáll átti líka fósturson, Jón Elvar Valdimarsson, en hann lést ungur af slysförum, ásamt föðurbróður sínum Sigurði.

Útför Njáls fór fram í Blönduóskirkju 25. júlí 2016.

 

Morgunblaðið 9. ágúst 2016.

« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31