A A A
  • 1981 - Berglind Hrönn Hlynsdóttir
21.09.2015 - 09:08 | BIB,bb.is

Landsbankinn lokar á Þingeyri

Landsbankinn á Þingeyri. Áður Sparisjóðurinn.
Landsbankinn á Þingeyri. Áður Sparisjóðurinn.
BB hefur fyrir því heimildir að útibú bankans á Þingeyri verði lokað á næstunni.
Ekki hefur náðst samband við stjórnendur í bankanum þessu til staðfestingar. Um tvö stöðugildi eru í útibúinu og ekki liggur fyrir á þessum tímapunkti hvort starfsmenn þar fái starf við Landsbankann á Ísafirði. Á undanförnum árum hafa útibú í minni bæjum landsins verið lögð niður og er nú svo komið að það eru aðeins Ísafjörður og Bolungarvík sem státa af banka í sinni heimasveit hér á norðanverðum kjálkanum. 


Í maí 2012 lokaði Landsbankinn í Súðavík, Flateyri, Bíldudal og Króksfjarðarnesi við litla ánægju heimamanna. 
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30