28.11.2008 - 01:48 | JÓH
Karlakórinn Vestri heldur tónleika
Það er mikil tilhlökkun á meðal kórfélaga í karlakórnum Vestra þar sem þeir koma nú fyrst fram opinberlega, eftir að kórinn var stofnaður 1. maí sl. á Bjargtöngum. Sunnudaginn 30. nóvember nk. verða fyrstu tónleikarnir haldnir í Félagsheimilinu Baldurshaga á Bíldudal og hefjast þeir kl. 14.00. og sama dag í Tálknafjarðarkirkju kl. 17.00. Næstu tónleikar kórsins verða í Félagsheimilinu Birkimel laugardaginn 6. desember kl. 14.00 og í Patreksfjarðarkirkju sama dag kl. 17.00. Á tónleikunum verður í anda árstíðarinnar flutt jóladagskrá. Einnig verður boðið upp á einsöng, dúett og kvartett. Efnisskráin er afar fjölbreytt og er miðaverð 1000 krónur. Kórinn hefur opnað heimasíðu sem er http://123.is/vestri