A A A
  • 1926 - Jökull Sigtryggsson
  • 1946 - Katrín Eiríksdóttir
  • 1979 - Sólveig Eirný Sveinsdóttir
Slökkviliðsstjórinn, Kristján Gunnarsson frá Hofi, við brunabílinn með reykskynjara og rafhlöðu í höndum. Ljósm. H. S.
Slökkviliðsstjórinn, Kristján Gunnarsson frá Hofi, við brunabílinn með reykskynjara og rafhlöðu í höndum. Ljósm. H. S.

„Er eitthvert gagn af reykskynjurum, Kristján?“

„Heldur betur. Þeir eru 100% líftrygging þegar reykur eða eldur kemur upp og minnka að sjálfsögðu tjón á eignum.“

„Hvernig er staðan á þessum lífsnauðsynlegu tækjum í Dýrafirði í dag?“

„Hún er nokkuð góð. En sumsstaðar getur verið pottur brotinn. Ef það vantar þó ekki sé nema einn reykskynjara á heimili eða vinnustað, er það einum of mikið. Ég mæli með því að hafa einn reykskynjara í hverju herbergi.“

„Er einhver aðili sem hefur eftirlit með því að reykskynjarar séu til taks?“

„Það er eiginlega enginn formlegur sem slíkur. Tryggingafélögin reka áróður fyrir þessu. Og ég sem slökkviliðsstjóri nefni þetta oft við fólk.“

„Hvar fást reykskynjarar í Dýrafirði?“

„Þeir fást hjá okkur í Smiðjunni og svo náttúrlega á Ísafirði.“ 

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30