A A A
  • 1935 - Soffía Einarsdóttir
22.08.2015 - 06:18 | Elfar Logi Hannesson,BIB

Grettisstund fyrir austan á helginni

Elfar Logi Hannesson sem Grettir.
Elfar Logi Hannesson sem Grettir.
« 1 af 2 »

Samstarf Kómedíuleikhússins og Einars Kárasonar, skálds, með Grettis sögu heldur áfram á helginni.
Eystra fer fram hin árlega hátíð Ormsteiti og meðal þess sem boðið er uppá á því menningarhlaðborði er Grettisstund með Einari Kára og Elfari Loga. Um tvær sýningar er að ræða sú fyrri í Sláturhúsinu Egilsstöðum í dag, laugardaginn 22. ágúst 2015 kl.17. Daginn eftir sunnudaginn 23. ágúst verður Grettisstund í Baðstofunni í Óbyggðasetrinu Egilsstöðum í Fljótsdal kl. 16:30.


Þeir félagar hafa verið með Grettisstund bæði í Fischersetri á Selfossi og á Gíslastöðum Haukadal. Formið er á þann veg að Einar Kárason hefur leik með einstöku erindi um hina mögnuðu Grettis sögu. Kómedíuleikarinn, Elfar Logi, tekur svo við og sýnir einleikinn Gretti. Vel hefur verið tekið í Grettisstundina og mjög líklegt að stundirnar verði mun fleiri á komandi leikári. 

 

Elfar LOgi Hannesson.

« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31