„Frestun Dýrafjarðarganga mun reynast samfélaginu dýr“
Dýrafjarðargöng eru forsenda allra áætlana um uppbyggingu atvinnulífs, þjónustu og opinberrar stjórnsýslu á Vestfjörðum, hvort heldur litið er til Sóknaráætlunar 20/20, Byggðaáætlunar, samvinnu eða sameiningar sveitarfélaga eða annarrar opinberrar þjónustu," segir í ályktuninni.
Þar segir jafnframt: „Dýrafjarðargöng og uppbygging vegar um Dynjandisheiði sameinar byggðir Ísafjarðarsýslu og Barðastrandarsýslu í eitt atvinnu- og stjórnsýslusvæði og er alger forsenda þess að opinberar áætlanir um uppbyggingu á Vestfjörðum nái fram að ganga. Frestun Dýrafjarðarganga, þó ekki sé nema um nokkur ár, mun reynast samfélaginu dýr.
Samgöngunefnd Fjórðungssambands Vestfirðinga vill minna á að framlög til vegar um Barðastrandarsýslu á milli Bjarkalundar og Flókalundar hafa áður verið ákveðin og Dýrafjarðargöng eiga ekki að hafa áhrif á þá stefnu að koma byggðum Barðastrandarsýslu í heilsársvegasamband við þjóðvegakerfi landsins. Nú er útlit fyrir að Vesturbyggð og Tálknafjörður verði einu þéttbýlissvæði á landinu sem enn hafa ekki nútímavegasamband við aðra landshluta að tveim árum liðnum, hvort heldur er sunnan Breiðafjarðar eða norðan. Vestfirðingar skora á Alþingi að sýna vilja í verki með því að samþykkja úrbætur í þessum efnum á samgönguáætlun nú þegar."
Samgöngunefnd Fjórðungssambands Vestfirðinga er kjörin á Fjórðungsþingi Vestfirðinga og starfar sem fagnefnd sambandsins í samgöngumálum. Nefndin vinnur álitsgerðir og gerðir tillögur að umsögnum til stjórnar Fjórðungssambands Vestfirðinga.