A A A
  • 1935 - Soffía Einarsdóttir
Salthúsið á Þingeyri.
Salthúsið á Þingeyri.
Minjastofunun Íslands hefur úthlutað styrkjum úr húsafriðunarsjóði fyrir árið 2015.
Alls var úthutað 224 styrkjum, þar af fengu 48 hús á Vestfjörðum styrk úr sjóðnum, 9 kirkjur, 8 friðlýst hús, 22 friðuð hús og 9 önnur hús og mannvirki . Flest húsin eru á Patreksfirði og Ísafirði, en hæstu styrkirnir fara til Hagakirkju á Barðaströnd og Ögurkirkju í Ísafjarðardjúpi, 3 milljónir í hvora kirkju og til Síldarverksmiðjunnar á Djúpuvík 1 milljón króna. Hæstu styrkir til friðlýstra og friðaðra húsa renna til Gamla bakarísins við Aðalstræti á Patreksfirði, 900 þúsund, til Vatneyrarbúðar á Patreksfirði 800 þúsund og Faktorshússins í Neðsta á Ísafirði 800 þúsund. Alls fá 12 hús á Patreksfirði styrk, 9 hús á Ísafirði og 8 hús á Þingeyri og Dýrafirði. Styrkir til húsa á Vestfjörðum 2015:


Í flokki friðlýstra kirkna
- 9 kirkjur á Vestfjörðum, alls 9 milljónir króna:
Hagakirkja á Barðaströnd (Vesturbyggð)  3.000.000 kr.
Patreksfjarðarkirkja  600 þús. kr.
Selárdalskirkja, Arnarfirði  600 þús. kr.
Mýrakirkja, Mýrum Dýrafirði  300 þús. kr.
Sæbólskirkja, Ingjaldssandi  400 þús. kr.
Ögurkirkja, Ísafjarðardjúpi  3.000.000 kr.
Vatnsfjarðarkirkja, Ísafjarðardjúpi  500 þús. kr.
Staðarkirkja, Aðalvík (Ísafjarðarbæ)  200 þús. kr.
Bænhúsið í Furufirði (Ísafjarðarbæ)  400 þúsund kr.

Friðlýst hús og mannvirki
- 8 hús á Vestfjörðum, alls 5,1 milljón krónur:
Edinborgarhúsið Aðalstræti 7, Ísafirði  700 þús. kr
Jónassenshús / Mjósund Aðalstræti 8, Ísafirði  700 þús. kr.
Faktorshúsið Neðstakaupstað, Ísafirði  800 þús. kr.
Krambúð Neðstakaupstað  500 þús. kr.
Tjöruhús Neðstakaupstað, Ísafirði  400 þús. kr.
Vatneyrarbúð Aðalstræti 1, Patreksfirði  800 þús. kr.
Salthúsið Þingeyri  700 þús. kr.
Riishús Borðeyri 500 þús. kr.

Friðuð hús og mannvirki
- 22 hús á Vestfjörðum, alls 10,7 milljónir, þar af 7 í Patreksfirði, 4 í Dýrafirði, 2 á Ísafirði, Bíldudal og Tálknafirði:
Vinnuver Mjallargötu 5, Ísafirði  500 þús. kr.
Þvergata 3, Ísafirði  400 þús. kr.
Prestbústaður, Stað Aðalvík   200 þús. kr.
Guðbjartshús Bárugata 4, Flateyri  500 þús. kr.
Aðalstræti 13, Patreksfirði  200 þús. kr.
Gamla bakaríið Aðalstræti 88, Patreksfirði  900 þús. kr.
Gamli spítalinn Aðalstræti 69, Patreksfirði  700 þús. kr.
Ólafshús Aðalstræti 5, Patreksfirði  700 þús. kr.
Símstöðin Aðalstræti 3, Patreksfirði  400 þús. kr.
Valhöll Aðalstræti 84,  Patreksfirði  700 þús. kr.
Hesthúsið á Hólum, Láganúpi í Kollsvík, Patreksfirði 300 þús. kr.
Gamli bærinn á Sveinseyri, Tálknafirði  600 þús. kr.
Sjóarahús Hvammeyri,  Tálknafirði  300 þús. kr.
Rafstöðin við Hnúksá í Bíldudal  700 þús. kr.
Sólheimar Hafnarbraut 6, Bíldudal  700 þús. kr.
Brekkugata 5, Þingeyri  700 þús. kr.
Gamla pósthúsið Fjarðargata 14, Þingeyri 300 þús. kr.
Guðnabúð - Ástralía Fjarðargata 13, Þingeyri  400 þús. kr.
Barnaskólinn Keldudal, Dýrafirði  400 þús. kr.
Ármúli I, Ísafjarðardjúpi (Strandabyggð)  400 þús. kr.
Hjallur / pakkhús Laugaból, Ísafjarðardjúpi (Strandabyggð)  300 þús. kr.
Strýta í Flatey á Breiðafirði, 400 þúsund kr.

Önnur hús og mannvirki
- 9 hús og mannvirki á Vestfjörðum, alls 4,1 milljón krónur:
Herkastalinn Mánagata 4, Ísafirði  500 þús. kr.
Vegamót Seljalandsvegur 4a, Ísafirði  300 þús. kr.
Dallahús Aðalstræti 16, Patreksfirði 300 þús. kr.
Steinsteyptir ljósastaurar á Patreksfirði 450 Patreksfjörður 300 þús. kr.
Stínuhús Aðalstræti 11, Patreksfirði  700 þús. kr.
Veðramæti Aðalstræti 77A, Patreksfirði  300 þús. kr.
Arnarnúpur Keldudal, Dýrafirði  300 þús. kr.
Gamla prestssetrið Kollafjarðarnesi, Strandabyggð  400 þús. kr.
Síldarverksmiðjan Djúpavík, Árneshreppi  1.000.000 krónur.

Húsafriðunarsjóður styrki til viðhalds og endurbóta á friðlýstum og friðuðum húsum og mannvirkjum. Einnig er heimilt að veita úr sjóðnum styrki til viðhalds eða endurbóta annarra mannvirkja að því gefnu að þau hafi menningarsögulegt, vísindalegt eða listrænt gildi. Einnig ber sjóðnum að stuðla að byggingarsögulegum rannsóknum, þar með talið skráningu húsa og mannvirkja, og miðlun upplýsinga um þær. Minjastofnun Íslands úthlutar styrkjum úr húsafriðunarsjóði að fenginni umsögn húsafriðunarnefndar
« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31