A A A

Atburðir

Morðhelgi á Núpi

Hótel Núpur í Dýrafirði. Mynd: hotelnupur.is
Hótel Núpur í Dýrafirði. Mynd: hotelnupur.is
Helgina 17. - 19. febrúar blása bræðurnir á Hótel Núpi til vináttuhelgar. Sú vinátta sem þar svífur yfir vötnum breytist reyndar fljótlega því morðæði grípur einhvern gestanna. Hefur þig einhvern tíman langað að feta í fótspor Shelock Holmes, Matlocks nú eða Jessicu Fletcher í Murder she Wrote og leysa stóra morðmálið? Nú er tækifærið!

Glæpafélag Vestfjarða og Ævar Örn Jósepsson rithöfundur bjóða þig velkominn á vináttuhelgina. Gisting í 2 nætur með fullu fæði á aðeins 21.900 kr. tilboð fyrir þá sem bóka fyrir 1. febrúar 19.900 kr.

 

BÓKANIR Í SÍMA 456 8235 eða info@hotelnupur.is

Opið hús í leikskólanum Laufási

Laufás.
Laufás.
Leikskólinn Laufás verður með opið hús þann 6.febrúar. Öllum er velkomið að kíkja við frá 9-11:45. Boðið verður upp á útikakó og meðlæti frá 9:20-10:10 á hlóða-svæðinu. Eftir það verður sameiginlegur hópatími í íþróttahúsinu, sem velkomið er að fylgjast með. Dagur leikskólans er samstarfsverkefni Félags leikskólakennara, Félags stjórnenda leikskóla, mennta- og menningarmála-ráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og skóla. Tilgangurinn er að auka jákvæða umræðu um leikskólann, vekja umræðu um hlutverk leikskóla og starf leikskólakennara og kynna starfsemina út á við.
« Maí »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    
Fjölkunnugir forðum nýttu sér
Ferðamönnum einkar gagnlegt þý
Fjölda af því finna muntu hér
Finnst það gjarna hurðar götum í
Höf: Líni Hannes Sigurðsson
Eldri spurningar & svör