Eikin ættar minnar
Íþróttafélagið Höfrungur frumsýnir leikrit sem nefnist Eikin ættar minnar, af séra Ólafi á Söndum. Leikurinn gerist í lok sextándu aldar og upphafi þeirra sautjándu. Klerkurinn Ólafur Jónsson var mjög merkur maður fæddur um 1560 á Tálknafirði en varð prestur á Söndum í Dýrafirði 1596 og til æviloka. Var hann síðan kenndur við þann stað. Ólafur þjónaði á Söndum samfellt í 31 ár og andaðist þar árið 1627. Ólafur er eitt af fyrstu tónskáldum Íslandssögunnar og var meðal vinsælustu og virtustu skálda þjóðarinnar á sínum tíma. Það er því við hæfi að gera þessu höfuðskáldi góð skil á heimaslóðum. Höfundur og leikstjóri verksins er Elfar Logi Hannesson og tónlistarstjóri er Krista Sildoja sem einnig sér um tónlistarflutning. Alls taka 20 leikarar þátt í sýningunni en í heildina koma um 50 manns að sýningunni.
Miðapantanir eru í síma 848 4055
- Hvar?
Félagsheimilinu, Þingeyri - Hvenær?
27. mars - Klukkan?
20:00 til 21:15



















